Í DK

Don´t look

07.02.2007 16:16:51 / guðrún

NÝ BLOGGSÍÐA!!!

Hæ elsku lesendur, he he, er búin að færa mig yfir á læst svæði svo ef þið viljið halda áfram að lesa pistlana mína þá verðið þið annaðhvort að óska eftir aðgangsorði á messenger eða senda mail á linuskautar@hotmail.com 

linkurinn er:  www.123.is/gudrun_dk   hlakka til að sjá kommentin ykkar þar ;) blikk blikk, he he  :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 11:15:09 / guðrún

Nýt bulli bull og myndir líka

Jæja er ekki orðin spurning um að tikka nokkur orð inn að nýju enda Rannveig búin að setja fram skriflega hótun og ég veit ekkert hvenær skvísan kemur í bæinn á morgun svo best að vera búin að þessu fyrir það, ha ha ha ha ha..  :lol:

JÆja í fréttum er þetta helst, skellti mér í saumó á föstudagskvöldið fyrir viku, skellti bara veika syni mínum á öxlina vel innpökkuðum um sjöleytið og rölti með hann yfir til Ölmu, ekkert smá næs að búa á kollegi við svona aðstæður, stutt að fara.. Við sátum og spjölluðum á meðan við fengum dýrindis mat að borða og svo hafði Alma keypt ávexti í eftirrétt í stað sætinda og fannst okkur tveimur það í fínu lagi þar sem við tvær eru í "aðhaldi" að þá gætu hinar bara fylgt með og því engin sætindi þetta kvöldið, ha ha ha.. frekar miklar egó þessa dagana ;)

Ég gekk víst svo fram af stelpunum í umræðunum eins og alltaf, he he, en þeim fannst ég fullgróf að tala um "hrukkutyppi" við hana Guðrúnu sem er með Ölmu í skólanum og við bara að kynnast þetta kvöld og þegar ég verð "skömmuð" þá fer ég náttla bara í gírinn þannig er það og byrjaði: "að konur sem eru ljótar séu svo heppnar að þurfa ekki að vesenast við að kaupa rifflaða smokka, gæjinn fær náttla bara gæsahúð í tillann".. svo var að koma fram ný rannsókn skv Sigurveig þar sem að konum er bent á að nota ekki hjálpartæki meir en klst á dag vegna hættu á ofnæmi frá gúmmíinu, já já stelpur mínar nú verður mar víst að fara að kíkja á innihaldslýsingarnar til að forðast sömu gúmmíefnin, því að klst á dag, ég meina kommon, þetta er náttla svo óraunhæf ósk.. og út frá þessu varð umræðan um nikkelið og nikkelofnæmi hjá fólki og jamm þær eru sumar greyin sem hafa fengið svo mikið ofnæmi að þær hafa líkst rollu... jamm, you know the rest, ha ha ha og ekki söguna meir um það.. þetta er náttla umfram alla siðferðiskennd fólks skv vinkonunum sem ætla að senda kellu í siðunarskóla því ég er víst ómeðvitað lagin við að ganga á grensurnar hjá fólki, ha ha ha ha..

Ég skellti svo stráknum á hina öxlina um hálftíuleytið og fór með hann heim í háttinn.. svolitlu seinna kom Leó gæji og ég hoppaði út á bar að hitta stelpurnar aftur nema í millitíðinni þarna hafði ég spjallað við "gamlan vin" sem ætlar að bjarga mér ef "þetta" fer að hafa aukaverkanir hjá mér, ha ha ha.. alltaf gott að eiga góða að.. ;)

Þegar ég kom út á bar voru sumir orðnir vel "hressir" en vóhó fjöldinn af kvenfólkinu var engu lagi líkt þetta var stærra en þegar við fórum allar saman í byrjun desember... svona stuttfrásagt þá voru ansi margar stelpur á leið út úr skápnum þettta kvöldið vegna fegurðar minnar, bwa ha ha ha, allavega nóg káfað á mér ;) aðrar voru víst komnar með vott af njálg, allavega leit það þannig út þegar það var tekinn dans upp við vegginn á barnum, sumar voru víst komnar á sextugsaldur skv ungum herrum á barnum, hárinu mínu endalaust hrósað og þær er nokkrar sem ætla að fá alveg eins, he he (sagði líka við Steinunni klippara að þetta væri náttla bara að heiður fyrir okkur tvær enda svo sem ekki skrítið að Gúnkan hafi ýmsa liti og greiðslur eftir að vera alin upp við skæri og liti á heimilinu (mútta tidl. hárgreiðslukona) og allir bangsar og dúkkur sem ég átti sem barn voru tekin í "brazelískt" því það voru ÖLL hár fjarlægð með skærunum og klippirakvélinni hennar mömmu, ha ha ha, ætli hún hafi ekki oft blótað mér í huganum þegar að hún var að fara að klippa einhvern og það var brúskur af bangsahárslubba fast í skrúfunni á skærunum, ha ha ha)... :lol:  og svona í lok kvöldsins þá var Micheal Jackson tekinn með stæl við mikinn hlátur en mín var mætt snemma heim, hálftvö, kófsveitt eftir allann dansinn, þetta er náttla svo sjúklega skemmtileg líkamsrækt, að dansa.. :)

Annars varð strákurinn loks hress á sunnudaginn og daginn eftir kom Johnny og við sátum og reflekteruðum yfir gangi mála á þessari blessuðu verkefnavinnu okkar með Kristinu og Gauja og Gokka.. þetta gekk virkilega vel fram eftir degi og náðum við að skrifa helling og tala helling saman, virkilega gaman og gott að hafa svona "sparringspartner".. við mæðginin rúlluðum svo eftir bílnum okkar sem var búinn að vera á verkstæði þá í tæpa viku og ég er varla keyrð af stað þegar ég heyri nýtt aukahljóð í beyglunni minni, argg.. hvað ég var ekki að meika þetta, sjálf orðin hálf lasinn og skítakuldi úti..

Þriðjudaginn mættum við grúppan kl. 9 í skólann en viti menn þá hafði enginn nema Gúnka verið vakandi til tvö um nóttina til að klára allt fyrir prófið á miðvikudeginum og þau þurftu því að nýta daginn til að klára það allt sem ég hafði eytt tíma í deginum/kvöldinu áður :s mínsla ekki happy og stakk af til Ellu gellu um hádegið, búin að sitja þarna í tæpa fjóra tíma og gera ekki shit.. við tvær spáðum í bolla og spil og litu dagarnir og næstu vikur ekki alveg jafn svart út og ég hélt en ég meina kommon, það hefði átt að fylgja með pakki af þunglyndistöflum með þessum hóp því eins og fólk veit sem þekkir mig vel þá þarf mikið til að gera mig alveg út af laginu en halló!!! þetta var engu lagi líkt þessi "vinnubrögð" hjá þeim eða réttara sagt mangel på den.. Eftir að hafa kíkt í skemmtilegan bolla skelltum við stöllur okkur á Bagel kaffihús sem er ekki langt frá heimili hennar og fengum okkur mega góða kjúklingasúpu með birki/sesam beyglu, nammi namm.. sátum þar og spjölluðum um heim og geim þangað til ég hringdi hálffjögur í hópinn en þá voru þau að verða tilbúin til að halda áfram sem hópur en þá var mínsla orðin mega slöpp, raddlaus og þurfti að fara að sækja strákinn á leikskólann og var langt frá því að vera sátt út í þau.. pirr pirr.. Ég eyddi svo kvöldinu í að kíkja á kenningarnar og aðferðirnar sem við höfðum notað í þetta verkefni og endaði svo kvöldið á einum af mestu bullusamtölum sem til eru við Ölmu, he he.. við búnar að innrétta svona rosa fína gufuaðstöðu inná baði hjá mér þar sem hægt var að sitja á klósettinu með skemillinn hans HP undir fæturnar á meðan að sturtan sá um að mynda gufuna með öllu heita vatninu, var meir að segja farin að spá í að hendast uppá Herlev hospital og stela nokkrum bækkenstole í sturtuna svo fleiru gætu komist að vegna eftirspurnar, ha ha ha ha.. veit þetta hljómar kjánalega en var svo fyndið þetta kvöld að ég felldi tár ég hló svo mikið.. og komst ekki hjá því að leiða hugann að því hvort þetta væri svona sem manni liði þegar mar væri að fara "yfirum" he he..

Á miðvikudaginn fór mínsla í prófið með hópnum og þetta gekk ágætlega, var náttla að mestu leyti raddlaus og hljómaði eins og strákur í mútum, ha ha ha en svona stutt frásagt þá náðum við þessu, enginn einkunn frekar en fyrri daginn í þessu námi nema ég er ekki frá því að það sé mér að þakka, allavega sagði kennarinn að það sem hafði komið fram af reflektioner í lokin hafi verið til að bjarga þessu.. meðan ég röflaði yfir lélegu vinnubrögðum okkar og ósamhæfni sem hópi og bla bla bla þá vildi hópurinn kenna stofnuninni um lélegu samskiptin eða réttara sagt litlu sem engin samskipti okkar á milli en ég ekki sammála frekar en fyrri daginn og vildi meina að það væri mjög mikilvægt fyrir okkur að sætta okkur við að hafa gert klúður og læra af þeim mistökum.. "Hvernig á mar annars að læra í lífinu ef mar gerir aldrei neitt rangt??" 8)

Ég stakk svo af eftir ágreining við hópinn, he he, lét náttla mitt fram í lokin - er ekki krakki lengur sem fer fram hjá vandanum - var víst aðeins of hörð og ein endaði úti með sígó búin að vera hætt í tvö ár, ha ha ha.. en ég fór svo á eftir henni og sagði eins og væri að þetta væri ekkert persónulegt en ef mar ásakar einhvern ú hópnum um eitthvað þá verði mar að geta staðið á bak við þau orð svo þeir sem fái á sig sökina geti notað kritiken til einhvers góðs, við kvöddumst svo með brosi (pottþétt báðar með fake bros, ha ha ha, en breytir ekki..) Ég fór beint til Ellu gellu sem sagt með míslu sína á kaffihúsi og ræddi þetta í gegn þar, fékk smá útrás útaf "heimsku" fólki, ha ha ha *blikk blikk* fór svo og keypti mér hálfgert gaddabelti og pönkarabol, skil sko vel þessa gotha og pönkara, bara lent á hræðilega leiðinlegu fólki í lífinu og ákveðið að snúa blaðinu á móti þeim, ha ha ha :) Einnig er ég komin með hefð í Frederiksbergcentrinu að fara í Jessen og kaupa mér segul á ísskápinn, síðasti hljómaði: "Jeg er ikke til at stoppe når jeg først kommer igang" og þetta skiptið "Jeg bliver ved med at tabe fedtet men det bliver ved med at finde mig igen" og svo næst þegar ég fer á að kaupa: "Vi kan ikke begge to se godt udt, enten mig eller hjemmet" ha ha ha, finnst þetta snilldar seglar á ísskápinn :lol:

Ég heyrði svo í yndislegri vinkonu sem hlaut þann heiður þegar hún hafði verið að ganga frá heima hjá sér - að labba inná bað og þar sat kærastinn - rauður í framan með rauðsprengd augu í þeirri verstu skítafýlu :^)  skv lýsingum hljómaði þetta eins og svínastían í Húsdýragarðinum þar sem liggur við gaseitrun - og gæjinn með stærsta bros í heimi, mega ánægður af "afrekum" sínum og að hún hafi fengið þá "ánægju" að upplifa þetta með honum, ha ha ha.. er þetta það sem kallast að fara í samband :s og aðeins lítið brot af programmet, dísus.. en ég þarf svo sem ekkert að hafa áhyggjur því mínsla stefnir á að sækja um í klaustur að náminu loknu og komin vel á leið með að hafa marktæk inngönguskilyrði, ha ha ha..  8)

Já annað er í fréttum, mín að koma óvænt heim um páskana BARA í 4 daga, frá fimmtudegi til mánudags, því að HP er að fara til pabba síns og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar, Gullý frænka að verða þrítug aðeins 5 dögum áðurn en ég kem heim og búin að lofa mér veislu í tilefni þess þessa helgina, svo náttla íslensku páskaeggin, maturinn hennar elsku ömmu minnar - hann er náttla bestur í heimi og svo næ ég að sjá fallega brúðarkjólinn sem að litla siss var að fá sendan en hún fékk amerískan hönnuð til að sauma hann fyrir sig og vá hann er sko flottur enda ekki nema von ég viti það því það var náttla moi sem rak augun í hann í magazíni í haust þegar hún var í brúðarkjólamátun með mér og mömmu, sem nota bene sat með tár í augunum, he he (og það þýðir víst lítið að þræta fyrir það, ha ha ha).. þetta er víst draumur margra mæðra þegar dætur þeirra ganga upp altarið að sjá þær í þessum ótrúlega fallegu kjólum en mér tókst náttla að "skemma" mómentið með því að gefa henni olnboga skot og sagði; "njóttu elskan, því ég mun aldrei giftast í hvítu og kirkju svo þetta muntu aðeins gera einu sinni.." því ef svo ótrúlega vildi til að einhver myndi ná að heilla mig þá myndi ég taka þetta frekar berfætt í víkinga/ásatrúarkjól með sylgjum og alles uppí fjöllum landsins eða þess vegna bara fjöllum heitra útlanda, ha ha ha... :D

Sigurveig dúlla var svo að útskrifast sem læknir á fimmtudaginn og vá hvað ég er stolt af þér stelpa, ég dáist að því hvað ein stúlka sem hefur gengið í gegnum ýmislegt að verða síðastliðin þrjú ár, þ.a.m. einstæð með tvo stráka og fleira til er búin að klára þetta nám með stæl. Eins og ég skrifaði í kortið hennar þá er hún sko búin að sýna það og sanna að ef manni langar nógu mikið til að draumur rætist þá gerist það með hörku og ákveðni... Ég lít sko upp til þín ástin mín og þú manst, blikk blikk, you're my privat doktor from now on, treysti engum lækni eins vel og þér ástin mín, þú ert með smámunasemina alveg á hreinu í þessum málum og yfirblikið í toppi.. smjask á kinnina handa þér ástin mín og takk fyrir æðislega veislu og mikinn hlátur, ha ha ha, frábært hópur af fólki samankominn og já Ágúst, ég er ekki frá því að þú ert svolítil hlussa með stóran rass, múha ha ha ha.. kissikiss, he he (you asked for it) :lol:

Svo rakst mín á þessa grein á mogganum en þetta eru þjóðverjar sem vinna við það að mótmæla og sjæse hvað ég hef miklu að mótmæla þessa dagana, ha ha ha.. held ég verði bara að fá þau til að labba á eftir mér hvert sem ég fer því mótmælin mín eru svo mörg.. ha ha ha, samt snilldar hugmynd hjá þeim :haha:

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1248978

Svo var mín að rúlla í gegnum myspace-ið eins og svo oft áður og hvað haldið þið að ég hafi rekist á!!!??? lið á bleyjunni í einhverjum wannabe "sexý" stellingum, sorry en how sick can people be.. ?? endaði náttla á því að míga á mig úr hlátri því þarna voru konur sem stóðu upp við hurðakamra og sátu pent á stólum í engu öðru en bleyju á rassgatinu, bwaha ha ha ha.. sorry ef þetta er áhugamál hjá ykkur lesendum en þetta kalla ég sick, sick, sick og hugsaði strax með mér hvort að gamla liðið sem þarf að ganga um tilneytt með bleyju vegna þvagvandamála væri á topp tíu yfir mest kynæsandi fólk í heimi?? gubbi gubb.. 8|

Og ekki skánaði það þegar ég lá í rólegheitum og var að horfa á þátt um hann Philip kallinn sem býr einhver staðar í rassgatavík með sjö konum, fimm börnum og einni tengdamömmu.. já já hann hafði fengið mánaðarköllun frá guði um að hann væri kóngur (var víst gyðingur að trú) og ætti að leiða fólk áfram í trú sinni í einhvern tíma..??!! spurning um hvort kallhelv.. hafi ekki bara verið með alvarleg fráhvarseinkenni af vímuefnum í einhverri meðferðinni þegar hann sá "guð" í þennan mánuð því þetta er náttla umfram alla etik og kallinn var víst DJ í den tid og tjahh lífsháttur margra þeirra verið ansi svæsinn... en allavega þá horfði ég á þessa mynd og velti því sterkt fyrir mér hvaða týpur af kvenfólki myndi geta látið "bjóða" sér svona líferni því t.d. var ein kellan að strjúka á honum bakið þegar kona nr. 6 kom og kyssti hann vel og vandlega.. ég veit náttla að kallinn hefur EKKERT að kvarta yfir, fær nóg af kynlífi og hefur þær í vinnu allan daginn á meðan hann leikur sér á hestbaki, ýmist á hestunum eða einni af þeim sjö kellum, ha ha ha.. en svo kom í ljós þegar leið á þáttinn að þær höfðu allar alist upp við slæmar aðstæður og voru líklegast illa farnar andlega enda svo oft þannig þegar fólk lætur bjóða sér svona ruglmunstur, sorry.. en svo í lokin kom litla systir hans í heimsókn og fréttamaðurinn fer að spyrja hana út í þetta allt og svo hvað henni finnist nú um að bróðir hennar sé "kóngur" og þá myndast þetta stóra spurningamerki fyrir ofan hausinn á kellu og hún horfir á bróðir sinn, hann segir hana þá lítið vita um þetta og fer að útskýra fyrir henni þessar sýnir sínar og hinn nýja tilgang í lífinu.. mar sér þegar munnvikin byrja að kippast á kellu og svo springur hún úr hlátri og myndin hálf endar þannig að hún situr og grætur úr hlátri á meðan hann situr við hlið hennar með krosslagðar hendur og fýlusvip, ha ha ha ha.. og þá hló mínsla náttla hæst af öllum, ha ha ha ha ha.... uhuhhuhuhu.. það sem fólk getur verið klikkað eða ég að nenna að horfa á svona bull en hey.. er nú að fara inná geðdeild í tíu vikur og svo sem ágætt að vera búin að sjá allar týpur af fólki áður svo ég springi nú ekki úr hlátri við óþægilegar aðstæður, ha ha ha, en það væri náttla svo týpiskt moi!!!  :lol:

En jæja er hætt enn og aftur, nenni þessu ekki meir - á enn eftir að segja ýmislegt fleir í fréttum en þær bíða fram að næsta bloggi því ég verð að hendast í ræktina áður en Einar tekur bílinn minn og lagar hann en hann er búinn að vera þvílíka björgunin síðustu viku, búin að redda sjónvarpsskápnum fyrir mig, bora upp gardínur sem voru keyptar í haust og nú að kíkja á bílinn minn, takk fyrir alla hjálpina stráksi!!!

ps. verð í áframhaldandi brunchum í næstu viku ef einhverja langar með sem ekki enn hafa komist að.. ;)

læst svo fylgja með hérna spána mina fyrir fimmtudaginn.. daginn eftir prófið með hópnum.. og já mín var sko þakklát fyrir að hafa náð með svona miklum fíflum :)

Fim 25.1.2007
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Skoðaðu smáatriðin sem þú upplifir og ekki hika við að deila með öðrum því sem gleður þig mest og ekki gleyma að leggja áherslu á að eiga samskipti við fólk sem er næmt á líðan þína í jákvæðum skilningi. Stjarna ljónsins þarfnast aðhalds þegar hjartastöðvarnar eru skoðaðar í janúarlok. Ekki gleyma þér í því stóra og hávaðasama þegar svarið býr í smæstu atriðum líðandi stundar. Þakkaðu daglega í huganum og ekki síður upphátt fyrir það sem þú getur leyft þér á sama tíma og aðstæður þínar fara batnandi. Hugaðu vel að ábendingu minni varðandi þakklætið í dag.

 

..svo henti mín inn 2007 á spámanninum og dró spil fyrir það..

2007


9 mynt

Velferð þín er fyrirfram ákveðin af æðri öflum. Hér er þér lýst sem manneskju sem kýs að vera ein endrum og eins og nýtur þess að eiga stundir með sjálfinu. Einmanaleiki angrar þig ekki heldur vellíðan sem tengist rólegu umhverfi þínu sem þú kannt vel að meta um þessar mundir.

Þú hefur lagt á þig ómælda erfiðisvinnu til að ná þeim árangri sem þú býrð við í dag. Nú er komið að þér að njóta tilverunnar. Þú átt það til að efast um að framhaldið verði jafn gott og spár segja en þar ert þú að eyða tíma þínum í óþarfar áhyggjur.

Fjárhagslegt öryggi einkennir framtíð þína

...ps. spurning um að fara að kíkja uppí háskóla lögfræðinganna og negla einn þar svo að þetta fjárhagslega öryggi geti átt séns á að verða til.. hmmm...  ha ha ha :haha:

 

 

..og svona í lokin þá sá ég þetta á myspaci-nu og fannst þetta brjáluð snilld.. njótið..

Þú ert 90´s kid ef þú:


Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!

» 12 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 12:40:23 / guðrún

Agnarögn í fréttum.. :)

Úff alltaf erfitt þegar mar ætlar að blogga aftur á bak, ha ha ha.. ef ég gleymi einhverju þá sorry.. :D en samkvæmt minninu þá gerðist lítið spennandi fram að miðvikudeginum í síðustu viku en þá kom nýji sófinn minn í litla kotið mitt.. jammi já, það var óskin í ár um jólin að fá pening uppí nýjan sófa og jú jú nú er þessi dýrindis tunguleður sófi í stofunni minni, kremaður á litinn.. jamm, vildi ekki brúnan og ekki hvítan og ekki hornsófa og heldur ekki bara 3 sæta, he he smá erfið kellan :) en hann fannst "kallinn" og nú prýðir hann stofuna mína... (amma nú er kominn nýr sófi fyrir þig að kúra í he he).. Um kvöldið fékk naglakvendið lánaðan bílinn hjá Ölmu beib og kom gamla sófanum á kerru og heim til eins úr hópnum m´num í skólanum en hann er nú nýji eigandi þess sófa og ég 500 kr (danskar) "ríkari", ha ha ha... 8)

Á fimmtudaginn fór mínsla svo með Ellu gellu að kaupa varahlut í burrann minn og svo brunuðum við uppí Field's, það var nú reyndar kolbrjálað veður þann daginn ROK og RIGNING og vorum við ekki vissar hvort við værum allt í einu komnar á götur Íslands að berjast við veðurguðina, ha ha ha.. Eftir smá búðarkíkk fórum við uppá 3 hæð í kaffi og góðar samlokur og kjöftuðum af okkur eyrun.. þvílíku plönin og áætlanirnar, markmiðin og allt það sem voru sett af stað yfir þessum einum kaffibolla en við valhoppuðum líka niður í svooo góðu skapi að það var engu lagi líkt, ha ha ha.. skelltum okkur inn í Sportmaster og keyptum lóð, hlaupaskó og ýmislegt annað til vellíðunar, he he.. og brunuðum svo heim útkeyrðar.. :lol: ég skellti mér svo í ræktina um kvöldið og svo í ljós á eftir, fór sæl og sæt að sofa, he he..8)

Á föstudaginn fórum við aftur í brunch, ha ha ha, já já við kellur alveg að missa okkur í þessum brunchum, ha ha ha... þá í Frederiksberg centrinu og gat nú verið að það voru náttla Íslendingar þar lika, he he.. þurftum alveg að passa hvað við sögðum en getum orðið svolítið kærulausar í umræðuefninu stundum, ha ha ha.. röltum svo búð í búð og enduðum með meðal annars með boli, peysur, pils í pokum.. fórum þaðan á Streetcut og jú jú þar var eitt um 1000 kr. í hárvörur enda allt búið og svo enduðum við á kaffihúsinu hans Frikka þar sem að Óli Gunnar er að vinna í kaffibolla aftur.. við spjölluðum reyndar ekkert við hann enda kolbrjálað að gera og hann "sveittur" að vinna, he he.. kannski einhvern tímann seinna ;)

Rannveig pantaði sér far til Köben þennan dag og er þessi yndislega stelpa að koma þann 18. apríl til 23. apríl og ætlum við meðal annars á tónleikana með Sálinni og Stuðmönnum, svo er búið að bjóða okkur yfir til Álaborgar í mega djamm þar yfir helgina svo guð veit hvað verður, þarf nú allavega að vera búin að koma kútnum mínum á einhvern góðan stað eða hann kannski á Íslandinu þarna hjá pabba sínum enda ekki löngu eftir páskana en hver veit, kemur allt í ljós, ekkert farin að skjálfa enn af stressi, he he..

Hannes vinur hringdi svo í mig líka þennan dag en kallinn mættur eina ferðina enn til Köben, ekki leiðinlegt og ákveðið að við myndum hittast uppá hóteli um kvöldið.. Ég kom þangað um ellefuleytið og stuttu seinna komu Didda (systir Hannesar) og Gísli og spjölluðum við dágóða stund áður en við Hannes lögðum í hann í bæinn þar sem við hittum Kollu, danska stelpu, Kidda fyndna úr Garðabænum og vin hans.. við tókum samt smá hjáleið og stoppuðum á shawarma stað þar sem mínslan bauð kallinum uppá durum rúllu, he he, honum var ekki skemmt en held að það sé í lagi, hann alltaf að borga allt fyrir mig þegar við hittumst ;) Ella kom svo ekki löngu seinna og shitturinn hvað það var gaman hjá okkur... við ekki verið þrjú saman í cirka tíu ár og vóhó, hvað við hlógum mikið, líka af því að Kiddi og vinur hans fóru á kostum þetta kvöld og tóku hina fyndnustu dansa.. ha ha ha.. leið eins og ég væri alvarlega ölvuð þegar ég keyrði Ellu heim, líka kannski af því að við þurftum að stoppa endalaust á leiðinni í bílinn vegna hláturskasta, meðal annars löbbuðum við framhjá kaffihúsi sem heitir "Halvvejs" og þá vorum við einmitt komnar hálfa leið að bílnum, ha ha ha.. talandi um að vera fyndnar, he he, enda Óli hennar Ellu búinn að segja okkur frekar skrítnar, við hlægjum víst af öllu sem við segjum, ha ha ha.. ótrúlega skemmtilegt líf, ha ha ha.. en við komumst báðar heim án vandræða þetta kvöld með brjálaða strengi í maganum.. :lol:

Á laugardaginn kom svo elsku besti prinsinn minn heim til múttunnar sinnar, oohhööjjj hvað það var næs að knúsa kauðann og ég er nú ekki frá því að hann hafi nú barasta líka stækkað þessa tíu daga sem hann var heima á Íslandi án mín, he he.. við rúlluðum heim og lágum svo í leti í nýja sófanum, bæði hálf þreytt eitthvað og kúrðum.. seinnipartinn fórum við í heimsókn til vinkvenna minna niðrí bæ en þar sem kútur var alveg kolómögulegur eftir að hafa sofnað í sófanum í klukkustund þá stoppuðum við stutt og vorum ekki í matnum en samt sjúklega gaman að hitta þær aftur og verið að skipuleggja dag í febrúar þar sem við tökum tøsesnak en sonur minn hafði nú orð á að þær hlytu að vera hundrað þúsund ára en greyið barnið getur náttla ekkert að því gert að vera svona ringlað í aldrinum þar sem hann á nú svona unglega og sæta mömmu, ha ha ha ;)

Við köstuðum okkur svo aftur í sófann um kvöldið með nachos, salsa, nammi og horðum á Over the hedge, god hvað við hlógum ha ha ha, frekar fyndin mynd og svo fékk minn að kúra í mömmuholu um nóttina.. ég hélt svo bara áfram í letinni um kvöldið, gekk aðeins frá og reyndar skúraði líka en annars bara leti, he he.. Sigga sæta snúllan mín hringdi í mig um kvöldið og bauð mér að koma til þeirra að spila með vinum en þar sem kútur var nýkominn heim afþakkaði ég en mun örugglega taka hana á boðinu seinna, takk dúllan mín fyrir boðið..

Á sunnudaginn tókst mér loks að koma gæjanum úr rúminu um ellefuleytið, he he.. eftir mikil átök og Hrefna og co komu svo í heimsókn og flatmöguðum við í sófanum og spjölluðum heilan helling en það var verið að sýna litla sæta húsið þeirra en þau stefna á að flytja heim til Íslands við fyrsta tækifæri.. Eftir að þau voru farin, hélt ég áfram með að ganga frá og svo rúlluðum við mæðginin á vinafólk okkar í Glostrup og sátum þar í ágætis tíma, takk fyrir kaffið Elsa og co, annars lítið annað afrekað þann daginn :)

Á mánudaginn var mætt í skólann og þóst gera eitthvað smá af viti, sátum í hópum og vorum nú bara að spjalla með kennara hvernig verkefnið gengi og hvernig við sæjum okkur ljúka þessu öllu en þar sem við erum að gera verkefni sem er svo ótrúlega ólíkt hinna hópanna þá fengum við nú ekkert brjálað út úr þessum tímum.... mínsla rúllaði því um eittleytið bara í kaffi til Ellunnar minnar og gluggaði smá í spil fyrir hana ;) rólegt annars þennan dag líka, skellti mér í ræktina áður en ég náði í kútinn á leikskólann og svo vorum við með aukagest í mat um kvöldið, vin HP - bara rosa rólegur og næs dagur..

Í gær aftur móti þá byrjaði dagurinn minn með myndatöku á frekar óvenjulegan máta, ha ha ha, en við erum að útbúa bækling fyrir bæjarfélag hérna í Danmörkunni og moi tók að mér að vera fyrirsætan á þeim bækling og mun því dreifast hér inn á heimili eldri borgara næstu árin, meir að segja löngu eftir að mínslan er flutt eitthvert annað til að verða fræg "fyrirsæta" ha ha ha.. set inn nýtt albúm með þessum bullmyndum en við Johnny skelltum þessu uppí svolítið kæruleysi í lokin enda must að eiga myndir af manni um þrítugt með göngugrindina til viðmiðunar seinna meir þegar NEYÐIN fyrir svolleis er kannski komin þá stefnir mín á að vera með þessar myndir innrammaðar á veggjum elliheimilisins og þannig höstla "reynslumiklu" kallana út á þær, ha ha ha ha... :haha: :lol:

Ég var varla komin inn um dyrnar þegar Ellan mín skrifaði hvort ég væri að skólast, það tók ekki mikið til að fá mig í brunch á gömlu lestarstöðina í Frederiksbergcenter þar sem við hlógum svo mikið að þjónninn danski var farinn að hlæja í hvert skipti sem hann leit á okkur þó svo að hann skildi ekki orð af því sem fór á milli okkar.. ha ha ha.. við komumst líka að því að við værum bara FULLAR á gleðinni og sem betur fer fylgdi nú engin þynnka því fylleríi, he he..8)

Við röltum svo um ganga centersins og eyddum pening hér og þar, alls staðar og komumst að því að útsölur er ANDLEGT OFBELDI og ætti að banna aðgang fyrir þá sem eru peningalitlir, he he.. Ég fékk svo segul á ísskápinn sem á stendur "Når jeg først går igang, er jeg ikke til at stoppe" og með mynd af kaffibolla á bakvið, hah a ha.. hverju orði sannara, sem minnir mig á það að ég þyrfti nú að fara að taka mynd af blessaða ísskápnum sem er farinn að halla ískyggilega mikið fram á við vegna of margra mynda af sætum strákum á póstkortum og ýmsu öðru bulli, he he.. orðið hálf hættulegt að opna ísskápinn en svo sem í lagi því allir í megrun á þessum bæ.. NOT, ha ha ha.. ;)

jæja vitið þið ég er komin með krampa í þumalputtann á öllu þessu pikki og ég sem ætlaði bara að skella nokkrum línum inn en Maren og Sigurveig ykkur var nær að vera að kvarta, ha ha ha.. læt nú kannski líða aðeins styttra af næsta bloggi.. datt bara ekki í hug að það væri svona krassandi lífið mitt þessa dagana og þetta er nú bara brot af heildinni  8)


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 09:32:44 / guðrún

Hendingarfærsla :þ

Jæja það má víst ekki henda inn svona færslu eins og þeirri síðustu án útskýringa, he he.. og til að fyrirbyggja misskilning sem mögulega gæti átt sér stað þá hef ég það fínt, ha ha ha, er ekkert að missa mig í karlamálum eða þess háttar ;)

Heyrði þetta lag þegar við vorum á Rosie's við stelpurnar af kolleginu 2. desember og gjörsamlega dýrkaði það á dansgólfinu, var bara í eigin heimi að dansa við það, ha ha ha.. ég er nefnilega farin að efast um að sá rétti sé til, ég veit það bara að sá sem kæmi til greina þyrfti að vera andsk.. sjálfstæður og geta séð um sig sjálfur, hafa ósk um það frelsi sem ég hef, svipuð áhugamál og náttla vilja búa meðal annars í Dk, ha ha ha.. stórar kröfur?? ;þ og get allavega sagt það að fyrir jólin, var ég að tala um við Ölmu og Sigurveig að á þáverandi punkti þekkti ég ENGAN mann, hvort sem hann var á lausu né í sambandi sem ég gæti séð standa við hlið mér.. ætli þetta merki að kröfurnar séu of miklar, veit ekki en ég get bara ekki sætt mig við hvað sem er.. er samt reyndar að stefna að því að pína mig í haust í að fara bara í eitthvað samband ef sá "rétti" verður ekki búinn að heilla mig því að ég finn hversu slæmt þetta er að verða með að búa svona ein og að vera sjálfstæð, þetta getur orðið hættulegur vani sem yrði ERFITT að breyta.. en nóg um þetta bull 8)

Var að skrá Halla Palla í streetdance/hip hop námskeið og byrjar hann í mars, held ég sé spenntari en hann, ha ha ha, en þetta verður sjúklega gaman enda tónlist hér heima alla daga, næstum allan daginn og erum við ekki óvön því mæðginin að taka nokkur dansspor saman á stofugólfinu, he he, klikkuð familí :lol:

Svo fer þorrablótið alveg að koma og það á náttla að mæta með prompi og prakt, vó hvað ég hlakka til og svo í apríl er ég búin að kaupa miða á Stuðmenn og Sálina og ætla ég, Alma, Rannveig, kannski Gullý, kannski Eva siss, kannski Rut og fleiri að fara, það verður svaðalegt.. ;)

Ég er nú búin að vera að velta því fyrir mér hvort hægt sé að sækja um stipendium (styrk) vegna of öflugs félagslífs þar sem að það virðist alltaf vera nóg í gangi og ég er EKKI að kvarta, finnst þetta æði, frábærir tímar framundan og kannski einhverjir óvæntir líka, hver veit, veit bara að I´m loving life like always og gæti ekki verið sáttari, finnst svo gaman að vera ég og vera hér í Dk :lol:

knús elskurnar..

ps. Ella gella takk fyrir æðislegt matarboð í lambalærið, nammi namm og ekki má gleyma flotta humarnum hans Óla ;) og Hannes takk fyrir frábært djamm á laugardaginn, mega fyndið að fá vini að heima til að sýna manni nýja skemmtistaði í Danmörkunni, ha ha ha, en þetta var mega stuð og verður endurtekið ;) ps. ef ykkur hin vantar að komast á ekta Rokk stað, þá veit ég um einn enn, þar sem þú skellir EKKI hnefanum í næsta Íslending og segir: "BLE-SAÐUR" þar sem fólk var nú þokkalega út úr heiminum og viðbrögðin óútreiknanlega en samt gaman og ég gat meir að segja sungið við nokkur lög, ha ha ha.. talandi um að vera klikk en Rammstein bjargaði þessu og svo einhver lög frá því í den þegar mar var ungur og vitlaus 8)

bllleee-sss


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 17:07:49 / guðrún

Lagið mitt!!! ;þ

THE PUSSYCAT DOLLS LYRICS

"I Don't Need A Man"

I see you looking at me
Like I got something that's for you
And the way that you stare
Don't you dare
'Cause I'm not about to
Just give it all up to you
'Cause there are some things I won't do
And I'm not afraid to tell you
I don't ever want to leave you confused

The more you try
The less I bite
And I don't have to think it through
You know if I'm into you

I don't need a man to make it happen
I get off being free
I don't need a man to make me feel good
I get off doing my thing
I don't need a ring around my finger
To make me feel complete
So let me break it down
I can get off when you ain't around
Oh!

You know I got my own life
And I bought everything that's in it
So if you want to be with me
It ain't all about the bling you bringing
I want a love that's for real
And without that, no deal
And baby I don't need a hand
If it only wants to grab one thing

The more you try
The less I bite
And I don't have to think it through
You know if I'm feeling you

I don't need a man to make it happen
I get off being free
I don't need a man to make me feel good
I get off doing my thing
I don't need a ring around my finger
To make me feel complete
So let me break it down
I can get off when you ain't around
Oh!

Let it go
Let it go
Let it go
Let it go
[Repeat 4X]

I don't need a
I don't need a man, I don't
I don't need a man
I'll get me through
'Cause I know I'm fine
I feel brand new

I don't need a
I don't need a man, I don't
I don't need a man
I'll make it through
'Cause I know I'm fine
Without you!

I don't need a man to make it happen
I get off being free
I don't need a man to make me feel good
I get off doing my thing
I don't need a ring around my finger
To make me feel complete
So let me break it down
I can get off when you ain't around
Oh!

I don't need a man (I'm over you)
I don't need a man (I'm over you)
I don't need a man
(I'm without you)
(I'm over you)

I don't need a man
I don't need a man
I don't need a man

Oh!


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 09:41:13 / guðrún

þá er dvölinni lokið í bili á Eyjunni..

Þá er þessu lokið í bili… búið að vera FRÁBÆR tími hjá mér á Íslandinu, búin að taka upp marga gamla vinskapi og búin að kynnast og eignast fullt af nýjum vinum og kunningjum.. Ef ég hefði þá ósk að geta breytt ferðinni þá myndi ég EKKI breyta neinu því hún er búin að vera eins nálægt því að vera fullkomin og hægt er að vera.. búið að dekstra við mann hægri vinstri af foreldrum, systir og ættingjum – stundum er þetta alltof gott að búa svona langt í burtu frá þeim því þegar við svo loksins hittumst eigum við svo yndislegar stundir saman, takk elsku mamma, pabbi, Eva María, amma og þið öll sem hafið átt þátt í því að gera þessa ferð svona skemmtilega og eftirminnilega.. fer héðan glöð og svo innilega sátt og hamingjusöm með hvað ég á gott og góða að (kyssi kiss)

Ég er búin að ná öllu sem ég ætlaði mér yfir jólin (já meir að segja fullt af grallaraskap, ha ha ha) en lesturinn fór nú fyrir lítið enda svo margt annað sem fékk athygli mína en nú er mar að fara að halda heim á leið ein svo ég ætti að geta lesið dag og nótt, allavega fram á föstudaginn þegar Alma skvís kemur frá Flórída, ha ha ha, því við stöllur eigum SKO eftir að taka spjallið sem varir örugglega nokkra daga, ha ha ha…  :haha:

Og fröken jákvæða er orðin enn jákvæðari á nýja árinu, enn sem komið er nýja árið búið að vera frábært, stútfullt af skemmtilegum og óvæntum atburðum, ha ha ha, sem ég myndi ALDREI viljað hafa misst ;)  8) 

Ég læt fylgja með hérna, spána fyrir ljónið á fyrsta degi þessa árs og svo ársspána af spámanninum og ef það er nú ekki barasta eitthvað til í þessu öllu saman eins og vanalega en MUNIÐ þið ráðið sjálf hvernig líf ykkar á að vera – skemmtilegt/leiðinlegt, rólegt/aktívt, ferðalög/heima fyrir og allt eftir þeim götunum.. hafið það sem allra allra best elskurnar þangað til við sjáumstum á ný því ég veit að þá verður stuð, alltaf stuð..  :lol:

Mánudagurinn 1. Janúar 2007 www.spamadur.is Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú kannt þá list að lifa og ættir aldrei að gefa gleðina upp á bátinn. Dagarnir framundan veita þér ófáar ánægjustundir. Þessa dagana virðist þú forðast árekstra þegar mannleg samskipti eru annars vegar miðað við stjörnu ljónsins en hér kemur fram að tunglið vakir yfir þér og þar af leiðandi ættir þú að beina viðkvæmni þinni í sem árangrusríkastar brautir og ekki síður ánægjulegastar.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst) - Ársspá 2007

* Sköpunargleði þín eflist

* Hugar að andlegum málefnum

* Trúir á töfra sem efla þig eingöngu

* Elskar innilega og vandar þig

Árið 2007 heldur þú vissulega enn í barnslega heimssýn þína sem er mjög heillandi eiginleiki í fari þínu. Þú trúir á drauga, púka og óskir sem rætast fyrir einhverja töfra löngu eftir að þú nærð kosningaaldri. Það kann að hindra þig í að verða fullorðin/n en þegar ársspáin þín er tekin fyrir þá hjálpa umræddir eiginleikar þér að takast á við það sem bíður þín. Þú leyfir þér að virkja sköpunargleði þína þegar vorar 2007 en í því felst hin hæsta gleði sem þú hefur eflaust upplifað lengi. Sköpunargleði þína máttu alls ekki takmarka og það veistu vel kæra ljón. Árið 2007 virðist þú leggja þig fram við að læra hvernig þú eigir að elska án skilyrða. Stjörnuspekilega stjórnast þú af sólinni, miðju og orkugjafa sólarkerfisins en þú finnur innra með þér að verkefni þitt er að opna hjarta þitt. Það gerir þú með því að sigrast á eigingirni þinni og tilfinningaleysinu sem af henni leiðir og minnkar væntingar þínar. Forðast það að hjakka tilfinningalega í sama farinu af vana eða af grundvallarástæðu. Finnur gífurlegri sköpunarþörf þinni uppbyggilega útrásarleið. Ef þú tekur þessum ráðum verður þú hamingjusamari sem félagi og vinur árið 2007. Sumarið framundan sýnir þig sterka/n, þrjóska/n, töfrandi í fasi og meðvitaða/n um sjálfa/n þig. Það er reyndar breytilegt hvernig þú beitir þínum miklu hæfileikum þegar líða tekur á lok ársins 2007 sem að þínu mati er eflaust sífellt umhugsunarefni. Ljónið er kannski ráðríkt, eigingjarnt og sjálfselskt en endar á því að gera margt fólk hamingjusamt. Þegar best lætur kennir þú með því að vera ástrík manneskja. Annars er minnst á að þú hugir að andlegum málefnum í ársspánni þinni í ár. Hér er komið inn á þá staðreynd af hverju þú átt engar minningar um þín fyrri líf. Svarið er að þú átt þær. Þú nemur þær bara ekki sem minningar úr fyrri lífum. Dýpst í verund þinni skynjar þú að þú hafir verið hér áður. Þú hefur nú þegar lifað allt kæra ljón. Þú ert aðeins hér núna til að rifja það upp.

Áhersla lögð á betrumbætur

- Elska fólkið sama hvernig að hagar sér !!!! 

- Hættu að gera óraunhæfar væntingar

- Áttaðu þig á hvað þú sannarlega vilt

- Gefðu eftir og leggðu þig fram við að hætta að vilja stjórna


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 18:19:53 / guðrún

Jæja loksins kom að því…

já hvar á ég að byrja, úffff… allavega langar mig að segja að ég er búin að eiga æðislegan tíma síðan ég kom heim til Íslands, búin að vera í MIKILLI afslöppun, nokkrum heimsóknum, sofa út með litla kút í kúri og hitta þó nokkra vini, suma gamla – aðra glænýja :lol:

En það er spurning að safna smá saman fyfir árið 2006

  • Í janúar byrja ég og ein af bestu vinkonum mínum að hafa samskipti aftur
  • í febrúar fór ég til Spánar og var það ágætis ferð með góðri hvíld en hræðilegu flugi heim aftur
  • í mars fer ég á námskeið og stuttu síðar klippi ég á allt sem að var ekki að virka í lífinu mínu
  • í apríl voru páskarnir og gerði ég mjög skemmtilegan feluleik með páskaeggið sem verður nú hefð héðan af heima hjá mér og kút… og já ekki má gleyma að skvísan hætti að reykja annan í Páskum með stæl.. :p
  • í maí, tjahh hvað gerðist nú eiginlega í maí mánuði, fyrir utan þau afmæli sem eru jú alltaf þá… hmm.. (látið mig vita skvísu vinkonur ef þið munið eitthvað merkilegt á þeim tíma sem ég er búin að gleyma)
  • í júní fórum við mæðginin í frábæra ferð í Bonbon land í góðra vinahóp sem stendur vel upp úr í minningunni vegna mikils hláturs, rigningar og "I værste tilfælde, må jeg så godt holde dig i hånden?".. svo flaug ég heim til Íslands til að vera þar í tvo mánuði, sem var mjög góður tími…
  • í júlí keyrðum við mæðginin til Akureyrar að hitta yndislega konu, ömmu sonarins og gistum hjá henni 3 nætur og áttum við æðislega tíma þar með henni, mér þykir svo vænt um hana, við fórum á kaffihús og kíktum út á lífið og spjölluðum heilan helling, takk fyrir okkur elskan… svo kom stóri dagurinn þar sem að enn eitt árið bættist við með gleði af minni hálfu (árin segja til um visku og þroska, í flestum tilfellum allavega)… fór þann dag í brunch með ömmu, Völu, Gullý, Evu Maríu, kútnum og Jóel á Hressó, ég keypti mér líkamsdekur í afmælisgjöf frá kútnum mínum (vá verð að muna að vera svona góð við mig oftar, þetta var æði), fór svo út að borða með henni Ölmu minni, Rakel og Bryndísi í rosa góðan mat og röltum við svo niður á Hressó og hlustuðum á life music fram eftir kvöldi, mikið var þetta skemmtilegur dagur sem ég á eftir að muna lengi vel… takk elskurnar fyrir að hafa hjálpað mér að gera hann svona eftirminnilegan..
  • í ágúst héldum við vinkonur á leið í Galtalæk með alla krakkaskarann og áttum þar æðislega helgi með vinafólki Ölmu og kynntumst meir að segja nýjum andlitum ;) fórum í sund á Reykjum eða álíka (er ekki sú besta í landafræðinni, ha ha ha) og svo fengu krakkarnir að fara í nokkur tívolíleiktæki sem voru í boði á svæðinu, við sáum mörg fræg andlit þar á meðal þurfti ég að afsaka barn vinkonu minnar við engan annan en Hemma Gunn eftir smá kjaft frá einni stuttri, ha ha ha.. svo hitti ég gamla kærasta og fleira þess háttar – sem sagt mjög skemmtileg helgi, ha ha ha… takk fyrir það elsku Alma mín.. Svo var þarna líka sumarbústaðarferð með fjölskyldunni sem gat ekki hafa verið betri og enduðum við hana á smá rúnti um landið og fórum Skálholt, Stokkur (dýragarður), Gullfoss, Geysir og Sólheima m.a. og eru til einar fallegustu myndir af okkur öllum úr þessari ferð – takk elskurnar fyrir að hafa látið verða af þessari ósk minni.. svo í lok ágúst héldum við mæðginin heim á leið aftur og tók ég hana ömmu mína með mér, hún er svo mikið yndi og í svo miklu uppáhaldi hjá mér þessi elska..
  • í september byrjaði frábæri skólinn minn aftur, við amma tókum okkar kollhnísa ha ha ha.. en lifðum þetta allt af ljónin tvö og kvöddumst með kökk í háls þegar hun hélt heim á leið.. komumst við Ella mín í samband við hvora aðra og það var æðislegt, hún er svo frábær þessi stelpa og góð vinkona mín, takk ástin mín fyrir að hafa ljáð mér eyra svo oft sem þú hefur gert og tekið þátt og stutt mig í þessum grallaraskap sem ég tók mér á hendur í septembermánuði og hef ekki enn sem komið er látið af hendi, sem betur fer, ha ha ha..
  • í október fór ég á PINK tónleika með Siggu, Írisi og Ellu gellu, einir bestu tónleikar sem ég hef nokkurn tímann farið á, vá vá vá, fékk nýjan lífskraft og breytti mörgu eina ferðina enn, ha ha ha.. gerðist enn meira villidýr sem ég hefði átt að gera fyrir alltof löngu en þar sem ég lifi eftir því að sjá ALDREI eftir neinu því ég tek mér það til viðmiðs og læri af því með að breyta hegðun þá segi ég nú bara "betra seint en aldrei elskurnar"..
  • í nóvember gerast miklar breytingar, barnsfaðir minn ákveður að flytja heim til Íslands og ræddum við mikið saman þennan mánuð sem ég er þakklát fyrir, fengum mörg mál á hreint sem hafa legið í "bleyti" alltof lengi og virtist sem við gætum reynt að finna út úr þessu í sátt og samlyndi.. ég vil samt koma því fram að ég óska honum alls hins besta á Íslandi og eins mikillar hamingju og hann ræður við…
  • í desember fer ég með hópi kvenna af kolleginu út að borða og svo enduðum við á skrautlegustu stöðum borgarinnar, ha ha ha, frábært kvöld sem endaði enn betur en von var á :p fór svo helgina eftir á julefrokost með skólanum mínum, það var líka frábært kvöld en ýmislegt kom í ljós þetta kvöld (sumt sem var nú þegar búið að koma í ljós) sem að hefði nokk mátt kyrrt liggja en svona er þetta stundum en ég get náttla ekkert að því gert að vera svona æðisleg og falleg eins og ég er, ha ha ha, er fædd svona… J svo flugum við mæðginin hingað til Íslands til að fagna jólum og nýja árinu með yndislegri fjölskyldu okkar og góðum vinum á meðan er mamma hennar Sigurveigar minnar að passa íbúðina okkar, elsku yndislegu vinkonu mín Sigurveig sem ég dáist að í gríð og erg fyrir metnað og afrek. Ég er svo búin að hitta hana Rannveigu mína nokkrum sinnum síðan ég kom heim og þú ert æði pæði fallega stelpa, þú átt bara að vera eins og þú ert góðhjörtuð, hress og skemmtileg, ég get ekki sagt annað en takk fyrir okkar frábæru tíma saman og spjall – þú hefur ósjaldan lyft mér upp og færð mig náttla alltaf til að brosa og hlæja.. Alma mín fallega er á Flórída núna með mömmu sinni, Jóel og Gróu, ég óska þér skemmtilegustu áramóta ástin mín, búin að sakna þín svolítið enda við búnar að hittast svo lítið síðustu vikur en hlakka líka þar á móti að eiga með þér frábæra stund í byrjun janúars áður en krakkarnir koma út til okkar, margt að segja frá *blikki blikk* Elsku æðislegasta Addý mín, hvar væri ég án þín elskan, þú hefur verið mér sem góð vinkona frá því ég man liggur við eftir mér, ég er og verð ævinlega þakklát fyrir vinskap okkar sem stendur sterkur þó svo að það líði mánuðir eða ár á milli þess sem við hittumst þá er alltaf eins og við hittumst í gær, elska þig ástin mín – takk fyrir að vera svona góð vinkona mín.. Elsku Gullý mín þú ert nú alltaf jafn yndisleg ástin mín og með fíflaskap okkar er erfitt að vera þessi alvarlega og lífsleiða, ha ha ha, takk ástin mín fyrir að vera þú og vinkona mín elsku frænka… Elsku Eva mín fallegust, takk fyrir öll spjöllin okkar á árinu sem er að líða, finnst við alltaf eiga góðar og skemmtilegar samræður og gaman að sjá hvað við erum búnar að þroskast og breytast frá því í den þegar við hlupum öskrandi systurnar á eftir hvor annarri og ég tala nú ekki um myndina frægu með beltin undir brjóst, ha ha ha – gæti ekki hafa óskað mér betri systur ástin mín, elska þig endalaust…

Ég held ég ætti að fara að hætta þessu áður en ég fæ sinaskeiðabólgu, ha ha ha, þið hinar elskurnar sem ég hef ekki enn nefnt en vitið innst inni að þið ættuð með rentu að standa hér að þá gerið þið það elsku dúllurnar mínar í hug mínum og hjarta.. ég lærði margt gott á árinu 2006 og þar á meðal var: "Ég vel mér ekki fjölskyldu en var guð sé lof heppin með mína yndislegu sem hefur sýnt mér ótrúlegan stuðning á árinu sem er að líða.. en ég vel mér vini mína, hverjir það eru sem fá að standa mér næst, sem ég trúi og treysti á, sem gleðjast og gráta með mér, sem ljá mér eyra sitt og hjarta þegar þörf er á, sem gera mig að enn betri manneskju, leiðbeina mér og ráðleggja og sem mér finnst gott og gaman að vera með (sama gildir til þeirra frá mér)".. ég á bara fáa vini en fullt af kunningjum..

 

Þá er komið að árinu 2007, ha ha ha.. en lofa fer ekki með mörg orð hér þar sem ég vil ekki skipuleggja það of mikið, veit bara að það verður jafn frábært og ég óska mér því það er AÐEINS ÉG sem ræð hvort að árið verður gott eða slæmt og hvernig ég ákveð að takast á við áföll ef þau verða einhver…

Allavega er áramótaheitið mitt að: minnka þessa blessuðu kaffidrykkju mína, ha ha ha, ætla að reyna að halda mig við cirka tvo kaffibolla á dag þar sem ég las rannsókn ekki löngu fyrir jólin að konur sem drykkju fjóra bolla yfir daginn væru í aukinni hættu með að fá ristilskrabbamein og ég segi nú bara JESÚS KRISTUR hvað þá með mig sem drekk svona cirka 10 til 20 bolla, gúlp.. en allavega árið 2007 ætla ég að halda áfram að vera heilsusamleg og taka að mér fleiri góð ráð í þeim málum, við mæðginin stefnum á að skella okkur á hipp hopp námskeið þar sem tónlist er stór þáttur í lífi okkar, ég stefni á að fara til hennar Sonju minnar í Flórída á nýja árinu, það eru óteljandi stórafmæli á nýja árinu þar á meðal mitt þrítugsafmæli og litla systir mín ætlar að giftast sínum yndislega unnusta í Dómkirkjunni í júlí mánuði, ég ælta að verða enn betri í því sem ég hef forðast vegna feimni og fyrst og fremst ætla ég að keppast við það að lifa lífinu mínu í gleði og hamingju því ég á það svo innilega skilið, eins og þið öll elskurnar.. hlakka til að upplifa þetta yndislega ár sem ég hef svo miklar væntingar til (enda 7 uppáhaldstalan mín) með ykkur öllum með tölu og munið "æfingin skapar meistarann" og "enginn veit sína ævi fyrr en öll er" en mín verður frábær!!!!! Knús í klessu elskurnar mínar, sjáumst mega hress og lífsglöð á nýja árinu en besti dagurinn verður fyrsti dagurinn á nýja árinu því þá kemur yndislegasti strákur í öllum heiminum heim til mömmu sinnar og fær rembingsknús, guð hvað það er ótrúlegt að elska einhvern svo heitt eins og ég elska son minn (fæ alveg tár í augun, he he) jæja ætla að hætta þessu áður en ég fer að skæla hérna, ha ha ha…


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 16:17:16 / guðrún

Smá smjörþefur :P

Ljónið

Ljónið er fært um að gefa ekki síður en þiggja og ástin kennir því að þarfir og tilfinningar annarra eru jafn mikilvægar og þess eigið en á sama tíma kemur hér fram að þínar tilfinningar verða uppfylltar ef þú ýtir efasemdum burt úr huga þínum og hleypir breytingum að með opnum huga að en íhugar þó öllum stundum vel val þitt. Viðurkenndu kosti þína og nýttu orku þína, sem er mikil árið 2007, þér til framfara. Ástarævintýri birtist mér þegar fólk í merki ljónsins er tekið fyrir. Á sama tíma og þú birtist aðlaðandi, heiðarleg/ur og býrð yfir kröftugri áru. En ef þú átt erfitt með að greina á milli langvarandi ástar og stundarhrifningar ættir þú að vera þolinmóðari og endurskoða lífsgildi þín gaumgæfilega.

(23.júlí - 22.ágúst)  www.spamadur.is

Ákvað að skella þessu inn núna.. ;) skrifa aftur rest seinna í dag, frá frábæru kvöldi með henni yndislegu Rannveigu í gærkveldi, hún er algjör æði.. og hinir bara fífl sem meina annað :haha: barnið að heimta tölvuna í leiki...


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:32:11 / guðrún

Komin á Djöflaeyjuna...

eigið sem yndislegust jól elskurnar og hafið gaman að, eins mikið og hægt er - ef þess krefst þá pínið ykkur til að brosa og þá ættu hinir að gera hið sama, he he..  ;)

Læt heyra frá mér á betri tíma en allt gengur rosa vel, sjúklega gaman að fljúga hingað heim, he he.. (já já 2+2 = Guðrún fyrir þá sem þekkja mig, ha ha ha) og svo bara búið að vera þvílíka stuðið síðan ég kom heim, fæ grallaraverðlaun ársins örugglega í jólagjöf, ha ha ha.. :lol:

Gleðileg jól elskurnar og ég læt heyra frá mér milli jóla og nýja ársins þannig að no happy new year now.. 8)

kissiknús í klessu elskurnar, elska ykkur öll.. :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 07:49:12 / guðrún

smá bull til að hressa mann við..

og svo..

 skelli örugglega fleirum inn hérna fyrir neðan, svo að þið fylgist bara spennt með ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 06:06:34 / guðrún

Örstuttar fregnir

Nú erum við mæðginin búin að skríða á fætur og klukkan er bara tuttugumínútur í sjö því að sonruinn er að fara að keppa í fótbolta og það tekur aðeins 50 mínútúr að keyra þangað og hann á að vera mættur seinast átta :s en svona er þetta nú ekki í hvert sinn því þá myndi ég EKKI leyfa barninu að stunda fótbolta, allar konur vita að við þurfum á okkar fegurðarsvefni á að halda..

Annars allt gott að frétta af miss Perfect í skólanum, hópurinn enn sömu lúðar og vanalega, og ég upplifi mig gera 75% af því sem þarf af 5 manna hóp enda eru þau annaðhvort svo ringluð að þau "skildu" ekki hvað þau áttu að gera eða gerðu lítið sem ekki neitt, urrr.. ég þarf meir að segja að tikka mest inn á tölvu þar sem þau komust að því að ég kann blindskrift á tölvu og skrifa mjög hratt, þá fannst þeim tilvalið að ég gerði það svo það tæki ekki of langan tíma og já ég veit, gæti alveg sagt þeim að hold k.. og láta þau gera þetta sjálf en sorry vandinn er líka sá að ég treysti þeim ekki :s vil fá að sjá allt sem þau gera áður en þau senda það því þau eru án gríns SVO ringluð alltaf og eru greinilega ekki alveg að skilja hlutina, ég eyddi því fimmtudeginum í að búa til töflu sem sýndi hvernig við gætum unnið verkefnið skref fyrir skref frá upphafi til enda varðandi kenningar og greinar í fagblöðum og þess háttar... tók mig svo saman á föstudeginum eftir skóla og eyddi rúmum tveimur tímum í að búa til áætlun fyrir HVERN dag þangað til við erum búin með önnina sem sýndi öll þau verkefni sem við þyrftum að skila, hver ætti að skila þeim, hvar og hvenær við ættum að mæta hverju sinni og til að gera hvað.. gubb, frekar tímafrekt en vitiði, mér fannst þetta æði eftir á, gerir hlutina mun einfaldari og þau ættu EKKI að geta ruglast héðan af en hey þau koma mér endalaust á óvart, ha ha ha.. en er samt innst inni þakklát fyrir allt þetta "vesen" sem búið er að vera því ég er búin að læra HELLING á þessu öllu, bæði í kunnáttu til efnisins (kenninga) og hvernig maður getur verið skipulagður :)

jæja í dag segir þessi þetta:

Sun 17.12.2006
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst) www. spamadur.is
Nýsköpun á við fólk fætt undir stjörnu ljónið um þessar mundir. Endurbætur gætu einnig átt við. Skapaðu framtíð þína alfarið sjálf(ur)því þú ert fær um að vera nægilega framurskarandi á því sviði sem þú ákveður að tileinka þér. Hér birtist upphafspunktur af einhverjum ástæðum.

verð að segja í beinu framhaldi af þessu að ég HLAKKA svo mikið til að nýja árið kemur, eyddi gærkveldinu í að skrifa jólakort og það stendur næstum í hverju korti árið 2007 af því mér finnst þetta svo falleg tala, ha ha ha.. veit ég hljóma gúgú en vitið þið að sjö er uppáhaldstalan mín, hefur alltaf verið og héðan af verður hún það líklegast og held ég og trúi því að margir skemmtilegir atburðir eigi eftir að gerast á þessu fallega ári.. ;)

Annars átti ég æðislegan tíma með Ölmu og krökkunum okkar (þau reyndar gólandi MIKIÐ) í gærdag, þau buðu okkur í mat, dýrindis lasagna og æbleskiver.. eijjj hvað það var gott og kósý að hittast, við hittumst næstum aldrei þessa dagana því það er svooo mikið að gera hjá okkur báðum og ætli við náum ekki bara rétt að hittast áður en hún flýgur heim á miðvikudaginn í EITT knús og svo sjáumstum við ekkert fyrr en á nýja árinu :s en takk æðislega fyrir okkur dúlla, þetta var æði, bæði maturinn og hyggen og náttla bara það að hafa náð að sjá þig í smá tíma, he he..

Sigurveig rúsína er á fullu í próflestri, þessi skvísa fór í próf á fimmtudaginn og stóð sig svo með stæl, fékk náttla tíu!!! Til hamingju elskan, er svo stolt af þér!!!... og þið hin svo þið vitið það þá er hún ÓLÉTT með stóru Ó-iii enda enn að takast á við ógleði og uppköst.. :s svo er dúllan að fara í próf aftur á mánudaginn, já hún er sko hetja þessi stelpa, sannur íslenskur víkingur í húð og hár.. gangi þér vel að læra í dag, fallega..

jæja verð að hundskast af stað í keyrslu til "Afríku" ef ég ætla að ná á réttum tíma :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 21:03:28 / guðrún

jæja smá fregnir..

hmm.. helgin var rosa skemmtileg en líka ÞREYTT, er búin að vera slöpp síðan í síðustu viku að drepast í hægra eyranu og vóhóhó með túrverki dauðans, mátti varla snerta mittið á mér því verkirnir voru svo miklir :s

Fim 7.12.2006
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst) www.spamadur.is
Þú ættir að vera hreinskilin/n við fólkið sem þú umgengst ef þér finnst skilaboð þín ekki komast nægilega vel til skila af einhverjum ástæðum. Ætlunarverkum þínum er brátt lokið eða er um það bil að ljúka því nýr kafli er hafinn. Hér er óvænt ánægja boðuð. Þér er að sama skapi ráðlagt að líta á togstreitu sem mannlega og raunverulega. Hlustaðu gaumgæfulega á sjálfið áður en þú framkvæmir (desember).

ákvað að skella þessu með svona uppá hefðina að gera, he he.. og nokkur orð um það sem ég hef verið að upplifa.. ég upplifði voða skrítið deja-vu við skólann í síðustu á föstudaginn en það var einhver maður á bíl að leita að húsi eða einhverju fyrir utan skólann minn og þá fékk ég allt í einu tilfinninguna og minninguna þegar að ég var að leita að skólanum á sínum tíma með umsóknina í iðjuþjálfanámið í hendinni - núna er ég komin á 5 önn og á aðeins rúmt ár eftir af þessu námi.. :) svo dreymdi mig draum á miðvikudagsnóttina í síðustu viku en meðal annars var draumurinn um það að ég var að gróðursetja fallegt blómstrandi tré í garðinn minn (var stærri garður en sá sem ég hef í dag og var á bak við einbýlishúsið mitt, he he) auk blómabeðs, ég kallaði á mömmu því ég varð að sýna henni fegurðina af þessu öllu þó sérstaklega trénu og hún var alveg sammála mér, við dásömuðum tréið fallega endalaust í draumnum... svo best sem ég veit þá merkir þetta tré nýtt upphaf í lífinu sem á líklegast vel við núna en held að það muni passa mjög vel við á nýja árinu sem ég hlakka svo mikið til að mæti á svæðið.. því að sjö er uppáhaldstalan mín og árið 2007 að koma ;)

en allavega þá endaði miss Perfect í sjúklega skemmtilegum julefrokost með bekknum mínum á föstudaginn síðasta og ha ha ha, hvað ég hló mikið - þau voru að sjálfsögðu með smá leik í gangi sem gat ekki verið fyndnari enda svo sem týpiskir danir að því leitinu, he he, við sátum svo og spjölluðum og dönsuðum fram eftir nóttu og keyrði ég tvo stráka heim þegar ég fór heim.. þeir reyndar sprungu úr hlátri þegar þeir sáu startkaplana í aftursætinu en ég útskýrði þetta pent fyrir þeim að þetta væri nýja leiðin til að höstla saklausa karlmenn í dag, ha ha ha.. þeim fannst ég frekar klikk eins og alltaf, ha ha ha...

vaknaði um ellefu morguninn eftir og var í stressi dauðans að komast heim til Sigurveigar og ná í barnið mitt, hafði ekki ætlað að sofa svona lengi en svona er þetta þegar maður kemur heim seint og síðar meir.. :) við mæðginin eyddum svo deginum í Toys'r'us og í Herlev Bymidte að kíkja á jólagjafir en ég gafst upp að lokum eftir að barnið mitt var búið að kvarta allan daginn yfir því af hverju væri alltaf verið að versla allt handa öllum öðrum og ALDREI fengi hann nú neitt og allt eftir þeim götunum, kom mjög þreytt og pirruð heim :( við eyddum svo kvöldinu í klessu í sófanum og horfum á einhverja fjölskyldumynd á meðan ég dottaði öðru hverju og svo var farið snemma í háttinn.. skemmtilegt líf ekki satt, ha ha ha.. ekki vera svona öfundsjúk... ;)

á sunnudaginn á meðan kútur var í afmæli þá rúllaði ég til Ástþórs til að ná í þessa blessuðu jólagjöf sem við Siggi keyptum handa stráknum og skilaði henni... fékk í staðinn mjög flottan ghettoblaster og keypti svo geisladisk með líka og svo fær hann hljómborð sem Eva systir átti þegar hún var yngri því við erum jú svo músíkelskandi þessi fjölskylda að það hálfa væri nóg og það eru rauð ljós á því líka sem kenna honum að spila og gera þetta skemmtilegt, hlakka mikið til þegar þetta kemur hingað út en ÆTLA að sjálfsögðu að kaupa flott headset handa honum til að AÐEINS hann geti notið glamursins í sjálfum sér, he he.. svo kíktum við í City2 eftir að hann var búinn í afmælinu og fórum í bíó á myndina Happy feet og hún var voða sæt og fyndin, hlógum mikið mæðginin.. he he.. kvöldinu var svo eytt í rólegheitum hérna heima, ég er að reyna að lesa fyrir blessaðan skólann, þýðir víst lítið að tuða yfir því hvað hinir eru miklir lúðar og gera svo ekkert sjálf lengur.. :)

í dag, eftir skrítinn morgun, fór ég í Field's og keypti næstum allar jólagjafirnar, á aðeins 4 eftir og veit uppá hár hvað 3 af þeim á að vera þannig að vandinn er ekki stór, guð sé lof, he he... en vá hvað það voru margir í bænum, hélt að fólk ætti að vera í vinnu eða álíka en nei nei allir með Garúnu í bænum, he he..

jæja eins og sést þá er ég EKKI að nenna þessu bloggi í þetta sinn og kveð því að sinni, læt nú heyra frá mér aftur áður en árinu lýkur, knús elskurnar...


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 20:37:29 / guðrún

létt og lag-gott :þ

Sun 3.12.2006
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Reyndu eftir fremsta megni að vera ekki háð/ur árangri með verkum þínum. Þegar þú hættir að vera háð/ur getur þú framkvæmt og ekki síður eignast allt sem þú kýst. Ef þú leitar að öryggi ættir þú að hefja leit þína innra með þér til að byrja með. Farsæld tengist breytingunum sem um ræðir. Hjónaband og hamingjuríkt fjölskyldulíf birtist hér. Hér er vísbending um ferðalag eða flutningar.

Mán 4.12.2006
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú gætir verið haldin/n þeirri trú að hlutirnir séu fyrirfram ákveðnir en þú ert minnt/ur á að þú getur valið. Ljónið býr yfir hæfileika sem felst í því að taka öllu sem gerist á jákvæðan hátt og ætti hérna að nýta þann eiginleika meðvitað. Erfiðar uppákomur kunna að birtast þér í upphafi desembermánðar en þar er án efa dulbúið tækifæri til að skapa nýjar hugmyndir. Búðu þig undir stórt stökk í átt að velgengni.

Fannst þetta svo einstaklega viðeigandi þó svo að allt stemmi jú ekki, öryggið hef ég og ég veit að hlutirnir eru ekki fyrirfram ákveðnir þó svo ég trúi sterkt á örlögin en líka hinn frjálsa vilja.. finnst bara ótrúlega fyndið hvað þetta á stundum vel við mann, ha ha ha...

..en svona í lokin þá var helgin frábær, æðislegt kósý kvöld með Ellu Gellu á föstudaginn, við mæðginin komum ekki heim fyrr en rétt fyrir miðnætti... skelltum okkur svo í frábæran julefrokost eftir hádegi daginn eftir sem að hefði varla getað verið betri né skemmtilegri, ha ha ha, allavega góður fyrir egó-ið, hí hí.. og svo fórum við stelpurnar út að borða um kvöldið og það var sjúklega gaman, fórum beint þaðan á karókí bar en enginn söng í mæk, góluðum aðeins með hinum söngvurunum og svo enduðum við á Rosie´s á dansgólfinu villtar og brjálaðar, ha ha ha... hittum frábæran svertingja (heyrði aldrei nafnið hans) í rosa flottum smóking sem var svo lífsglaður að það geislaði marga metra frá honum og við Rut, Inga og Elín reyndum ítrekað að læra danssporin hans en komumst jú ekki í hálfkvist við manninn, ha ha ha.. svo komu nokkrir óvæntir gestir frá karókíbarnum sem ruddu sér leið á dansgólfið til okkar, ha ha ha.. og voru ólmir í að sjá hvernig maður dansaði á Íslandi, var nú að spá í að skella smá riverdans á þá en hætti við, var ekki viss hvort þeir myndi skilja húmorinn eða hvort þeir myndu halda að ég hefði strokið af geðdeildinni í Ballerup, bwahaha ha ha.. allavega þá endaði kvöldið ekki leiðinlega :p á "tjatti" með einum 23 ára Falck redder, ha ha ha.. blikki blikk.. en hey, ekkert rugl konur góðar, var bílstjórinn og keyrði því gengið heim undir morgun með geislabaug fyrir ofan hausinn :)

knúsíknús...




» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 15:40:25 / guðrún

Frábærir dagar í gangi og lífið getur verið svo skemmtilegt stundum..

Hópurinn í skólanum lauk núverandi verkefni í gær, við sátum frá níu til fjögur og vorum komin með julegløgg og æbleskiver og hugguðum heima hjá Johnny undir lokin sem merkti það að við skiluðum af okkur þá í stað í hádeginu í dag. Fólk sýndi miklu meiri ábyrgð og áhuga í þessu verkefni, sem betur fer, ætli öll öskrin, skammirnar og svipirnir hjá miss Perfect hafi verið að skila árangri, ha ha ha.. allavega þá merkti þessi skil í gær, frí frá skóla í dag wuhhuuu.. ég náði í kút rétt um hálffimm í gær og skrifaði að við myndum hafa "studiedag" saman mæðginin í dag föstudag.. við valhoppuðum svo heim á leið, pöntuðum okkur pizzu og lágum til rúmlega ellefu í gærkveldi í klessu í litla sófanum okkar að horfa á Harry Potter mynd, mega næs og fórum saman að sofa enda ég gjörsamlega útkeyrð eftir vinnumikla viku í skólanum...

Kútur vaknaði um tíu en mamma hans skreið fram úr með erfiðleikum um ellefuleytið, he he.. ein þreytt mar!!! Tók smá til hérna í morgun og henti í vél á meðan ég kjaftaði í símann, ha ha ha en svo drifum við okkur í ræktina mæðginin og haldið þið ekki að herra Sæti hafi ekki verið þar, hí hí.. það sem maðurinn/strákurinn gefur mér stórt bros á vör alltaf, ha ha ha.. eftir klukkustundapúl á okkur mæðginunum, barnið líka að lyfta - þó aðeins 1 kílóa lóðum enn sem komið er, þegar við vorum að fara stóð gæinn í afgreiðslunni og við kveðjumst nema hann kallar á eftir mér hey varstu að breyta hári, ég brosi og hann segir vá ætlaði ekki að þekkja þig aftur og brosir sætt, ha ha ha, við kjöftum smá og óskum hvort öðru góðrar helgar.. og ég skoppaði út úr ræktinni með mega stórt bros á vör, ha ha ha.. nú skulið þið ekki misskilja, ekki strákur sem ég ætla að fara að daðra við en hann gefur mér eitthvað, veit ekki hvað það er en ÆTLA að njóta þess, ha ha ha, því það er svo gaman..

Við mæðginin komum svo heim og þar beið Siggi fyrir utan, hann fékk kaffi og vöfflur (fékk reyndar að baka þær líka sjálfur) og við HP fengum okkur heitt kakó með súkkulaði og rjóma, nammi.. við Siggi enduðum svo heimsóknina á því að fara í aðeins of miklar umræður um umgengni og samninga á stráknum en held að allt hafi verð í gúddí þegar hann fór.. allavega hjá mér og ég vænti þess að það sama hafi verið hjá honum, mikið að gerast og erfitt að finna það rétta að gera hverju sinni.. OG EKKI MÁ GLEYMA, BÆÐI ERUM VIÐ Í LJÓNSMERKINU, ha ha ha.. en barnið var jú heima svo bæði tvö tömdu sitt skap eftir bestu getu....

Við erum að fara með Ölmu og krökkunum uppí Herlev bymidte en það er verið að kveikja á jólatrénu þar með prompi og prakt.. við HP ætlum líka að kaupa jólakort, skraut í aðventukrans og nammi fyrir kvöldið en við erum að fara til Ellu og verðum hjá henni í kvöld, ætlum að borða saman og horfa á bíómynd áður en við HP rúllum heim... á morgun er svo julefrokost með fullt af íslendingum og Ellu að sjálfsögðu líka og um kvöldið fer HP til Sigga en ég er að fara út að borða með 15 íslenskum skvísum á Riz Raz í stað þess að halda julefrokost.. sunnudeginum á svo að eyða með Ellu Gellu og Júlla snúlla (1 árs) í búðum og dúlleríi, eins gott að kallinn verði í stuði, ha ha ha..

knús óverendát frá Dk..


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 07:44:26 / guðrún

Þumallinn upp :)

Það gekk rosa vel á föstudaginn..  ég og Ella skemmtum okkur konunglega og held ég geti sagt, allavega sjaldan, upplifað jafn mikla athygli og þetta kvöld, vóhóóó..  við rokkuðum feitt, áttum staðinn frá því við löbbuðum inn og þar til við fórum heim..  karlmenn voru eins og dýr í flokkum og við böðuðum okkur í athygli, ha ha ha ha..  skín ekki örugglega stoltið og sjálfsálitið í gegn hérna, he he... :p    Hitti hvolpinn ekki löngu eftir að við komum á staðinn og vorum mest megnis með þeim en stungum líka af öðru hvoru því að "frændinn" var ítrekað á eftir Ellunni og hún búin að benda honum á mann og tvö börn heima en hann var lidt ligeglad, he he..   en frábært kvöld á alla staði.. með smá kysse.. en við Ellan fórum svo heim rúmlega þrjú og þá varð hvolpurinn ekki ánægður, hehe..  en það er hans mál ekki mitt..  ég skemmti mér konunglega og fékk miklu meir út úr þessu kvöldi en ég átti nokkurn tímann von á..  við tjöttum enn á sms og messenger en verð að viðurkenna að nú er spennan eitthvað að dofna, ha ha ha..  nenni þessu núna aðeins með annarri hendi.. :lol:

Við Alma kíktum svo út á laugardagskvöldinu og enn og aftur var öll athyglin á okkur.. I feel great, ha ha ha..  þetta er svvvvvooo gaman að það hálfa væri nóg, ætli ljónið (athyglis áhugi) sé eitthvað að brjótast fram í miss perfect ?? 8|  8)

Jæja annars gengur vel í skólanum þannig lagað séð, skiluðum betri ritgerð í gær eftir smá læti af minni hálfu gagnvart fífl..  sem ekkert gera en þykjast vita allt..  væri jú gott ef það hefðu komið nokkur orð frá þeim líka í sjálfa ritgerðina.. :evil:

knúsíknús.. frá Köben :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3